REF 3037230
Nýr íbúðakjarni nálægt golfvellinum Villamartin, en velja má milli jarðahæðar, miðhæðar eða efstu hæðar. Íbúðirnar samanstanda af 1 eða 2 svefnherbergjum, 1 baðherbergi, opinni stofu/borðstofu og nútíma eldhúsi. Öll húsin hafa verönd og sumar jarðhæðaríbúðir hafa garð.
Aðeins 4 km frá Villamartin Plaza og ströndum La Zenia, 5 mínútur frá La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðinni og 10 mínútur frá bænum San Miguel de Salinas, með alla þjónustu sem þar má sækja.
Villamartín er íbúðabyggð við Orihuela Costa sem byggð var við samnefndan gólfvöll, Golfklúbbinn Villamartín. Völlurinn var byggður og hannaður af P. Puttman, og vígður árið 1972. Mikil gróðursæld hefur dafnað á þeim tæplega 50 árum sem liðið hafa frá opnun vallarins, sem gerir umhverfi hans einstaklega fagurt.
Fyrir þá sem vilja njóta lífsins í náttúrlegu umhverfi, nálægt ströndinni sem er í 5 km. fjarlægð, er Villamartín án efa besti kosturinn á Costa Blanca. Hér eru fasteignirnar í Villamartín:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum