REF 3747428
Glæsileg einbýlishús með einkasundlaug í Ciudad Quesada. Friðsælt íbúðahverfi þar sem stutt er í alla nauðsynlega þjónustu. Loftslag svæðisins gerir það mögulegt að njóta útivistar eins og golfs á La Marquesa golfvellinum, gönguferða og hjólatúra í La Mata þjóðgarðinum og vatnaíþrótta við strendur Guardamar, í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð.
Nútíma einbýlishús á tveimur hæðum með 4 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, byggð á lóðum á bilinu 381m2-500m2. Á neðri hæð er opin setustofa, borðstofa og eldhús, ásamt svefnherbergi og baðherbergi. Glerhurðar í stofu opnast út á yfirbyggða verönd með útsýni yfir sundlaugina og garðinn. Hjónaherberg með sér baðherbergi, og 2 svefnherbergi og baðherbergi eru á efri hæð. Stór þakverönd, eða 80m2, er útbúin til að setja upp útieldhús, nuddpott eða sturtu, gegn aukakostnaði.
Húsunum fylgir foruppsetning fyrir loftkælingu, fataskápar og bílastæði á lóð.Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum