REF 6008071
Einstök íbúðasamstæða, innan við 200m frá Playa del Cura og göngusvæðinu við ströndina í Torrevieja. Þessi bær býður upp á mikið úrval af daglegri þjónustu í göngufæri, með endalausu úrvali af börum, veitingastöðum og afþreyingaraðstöðu. Þetta er kjörin staðsetning í þéttbýli fyrir þá sem vilja ekki reiða sig á bíl. Íþróttaáhugamenn hafa mikið úrval af afþreyingu í boði í stóru íþróttamiðstöðinni, sem felur í sér fótbolta- og fjölíþróttavelli, tennis- og padelvelli og innisundlaug. Það eru líka ýmsir golfvellir í innan við 20 mínútna akstursfjarlægð, auk margvíslegrar afþreyingar, eins og vatnagarður, skemmtigarður við ströndina, sem og Habaneras verslunar- og afþreyingarmiðstöðin með kvikmyndahúsi og spilasal. Ekki má gleyma fallegu ströndunum í Torrevieja og nágrannaströndunum La Mata og Orihuela Costa.
Í boði eru íbúðir með 3 svefnherbergjum og 3-4 baðherbergjum, allar með bjartri og rúmgóðri setustofu, borðkrók og fullbúnu eldhúsi með útgengi út á yfirbyggða verönd. Þakíbúðin eru með ytri stiga sem leiðir að þakverönd með einkasundlaug. Allir íbúar geta notið allrar sameignarinnar, en þar er stór sundlaug, gufubað, sturtur og grillsvæði.
Íbúðirnar eru með loftræstikerfi, eldhústækjum, fullbúið baðherbergi með gólfhita, fataskápum og lýsingu. Fyrir aukaverð er hægt að kaupa bílastæði í sameign.
Miðað við staðsetningu, meðfylgjandi eiginleika og verð eru þessar íbúðir frábært fjárfestingartækifæri.
Torrevieja er borg þar sem njóta má lífsins utandyra, borg sem horfir alltaf til sjávar, borg sem er stútfull af hefðum og venjum en um leið nútímaleg og opin öllum sem vilja njóta lífsstílsins við Miðjarðarhafið. Borgin býr að einstöku loftslagi sem byggir á nálægð sjávar og staðsetningu hennar á Íberíuskaganum sem slíkum og þessi staðreynd býður okkur uppá meðalhita um 18ºC og meira en 300 sólskinsdaga á ári.
Það fyrsta sem vekur athygli í Torrevieja er umhverfið, þar sem tvö saltlón standa upp úr, annað bleikt en hitt grænt en vötnin eru hluti af þjóðgörðum Lagunas de La Mata og Torrevieja.
Þegar talað er um borgina er við hæfi að nefna tvennt; sjó og salt. Salt er hinn sanni uppruni þessa bæjar. Allt fram á miðja 20. öld var saltiðnaður aðalatvinnuvegur íbúa Torrevieja og í dag er Torrevieja einn helsti saltframleiðandi Spánar með um 600.000 tonna framleiðslu að meðaltali á ári.
Strandlengja Torrevieja er löng, eða samtals 14 km, þar sem finna má fjöldann allan af þéttbýlisströndum, víkum og skotum til að kæla sig í, en mörgum þeirra má hreinlega líkja við paradís.
Strendur Torrevieja eru vottaðar samkvæmt gæðastöðlum og umhverfisstjórnun. Torrevieja hefur þannig gæðastimpil sem hún má vera stolt af.
Mismunandi hefðbundnar hátíðir eru haldnar allt árið í borginni, svo sem páskagöngurnar eða sjógangan til heiðurs La Virgen del Carmen þann 16. júlí.
Maí hátíðin er líka mjög vinsæl meðal íbúa og gesta, með dæmigerðum básum, vínum, matargerð og tónlistarviðburðum. Torrevieja sameinar skemmtun og menningu fullkomlega.
Borgin tekur á móti þér opnum örmum og þú ert velkominn á fallegum stað fullum af lífi, menningu og skemmtun.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum