Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
REF 6476458
Ný íbúðasamstæða aðeins 500m frá ströndinni í San Pedro del Pinatar. Þessi strandbær býður upp á fullkomið úrval af daglegri þjónustu, eins og matvöruverslunum, bönkum, apótekum, börum og veitingastöðum, auk hótela. Útivistarfólk hefur mikið úrval af íþrótta- og tómstundastarfi í boði, eins og siglingar í siglingaklúbbnum, vatnaíþróttir á Mar Menor ströndum, gönguferðir á fjöllunum í kring, golf, sem og lækninga leðjuböðin í San Pedro Salinas. Hið frábæra vegakerfi tengir bæinn fljótt og auðveldlega við aðra þéttbýliskjarna Costa Cálida sem og Costa Blanca. Murcia flugvöllur er í aðeins 35 mínútna fjarlægð, en Alicante flugvöllur er í rúmlega klukkutíma fjarlægð.
Í verkefninu eru íbúðir með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, fáanlegar á jarðhæð með rúmgóðri verönd, og efstu hæð með sér þakverönd. Allar íbúðirnar samanstanda af opinni stofu, sem sameinar eldhús, borðstofu og setustofu í einu rými, með stórum gluggum sem opnast út á verönd. Íbúðirnar eru með loftkæli kerfi, eldhústækjum, innbyggðum fataskápum, rafmagnsgardínum, LED lýsingu inni og úti og bílastæði á opnu sameignar bílastæði. Íbúðirnar á efstu hæð eru einnig með sumareldhúsi og pergola á þakveröndinni.
Sameignar svæðið inniheldur sundlaug og garðsvæði, þar sem íbúar geta notið milds loftslags Costa Cálida.
Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
San Pedro del Pinatar hefur fram að færa 14 km af ströndum sem skiptast milli tveggja hafa; Mar Menor og Miðjarðarhafsins. Sérstök staðsetning bæjarins við ströndina og náttúrulegt umhverfi á svæðinu hafa ýtt undir vinsældir hans og aukið eftirspurn eftir húsnæði.
Auk fallegra stranda, hafnarinnar og góðu framboði þjónustu hefur San Pedro del Pinatar fram að færa einstaka náttúruperlu; þjóðgarðinn Las Salinas y Arenales de San Pedro del Pinatar en garðurinn er votlendi með fjölbreyttu fuglalífi og fallegri plöntuflóru. Bærinn San Pedro del Pinatar, auk sjálfs kjarna bæjarins, er byggður upp af öðrum litlum úthverfum eins og El Mojón, Las Salinas, Los Sáez og Lo Pagán. Hið síðasttalda, Lo Pagán, er hið mikilvægasta vegna mikillar þróunar hvað varðar ferðamennsku. Mikilvægasta ströndin í Lo Pagán er playa de La Puntica, en þar eru falleg lítil hús og spa svæði sem teygir sig út í hafið, auk góðs framboðs af dægradvöl.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum