Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
REF 7306681
Þessar íbúðir í Lo Pagán við Mar Menor eru staðsettar aðeins 70 metra frá ströndinni og sameina nútímalega hönnun og eftirsótta staðsetningu við sjóinn. Verkefnið er lítið í sniðum og hentar þeim sem vilja búa nálægt strandlífinu og njóta miðjarðarhafs-lífsstílsins á Costa Cálida. Strandgatan, tær sjórinn og rótgróið íbúðarhverfi skapa aðlaðandi umhverfi bæði fyrir heilsársbúsetu og frístundar eign.
Framkvæmdin samanstendur af íbúðum með 2 svefnherbergi og 2 baðherbergi, auk þakíbúðar með 3 svefnherbergi og 3 baðherbergi sem tekur alla efstu hæðina. Allar eignirnar eru með opnu eldhúsi með eldhústækjum, loftkælingu, rafdrifnum gardínum og handklæðaofnum á baðherbergjum. Í sameign er upphituð sundlaug með veröndarsvæði og möguleiki er á að kaupa stæði og geymslu í bílakjallara.
Þakíbúðin sker sig úr fyrir staðsetningu sína og útisvæði. Hún hefur þakverönd með sjávarútsýni, sundlaug, grillhorn og sumareldhús og myndar þannig náttúrulega tengingu milli innandyra og útivistar.
Sem hluti af San Pedro del Pinatar nýtur svæðið vinsælda fyrir breiðar sandstrendur, lystibáta hafnir og fjölbreytt útivistarlíf allt árið um kring. Hinar þekktu leir böð eru meðal vinsælla tómstunda á svæðinu. Verslanir, heilbrigðisþjónusta og veitingastaðir eru í nágrenninu. Murcia-flugvöllur er í um 30 mínútna akstursfjarlægð og Alicante-flugvöllur í um 1 klukkustund.
Hér gefst tækifæri til að njóta lífs við sjóinn í einu af rótgrónustu strandsvæðum Mar Menor.
Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
San Pedro del Pinatar hefur fram að færa 14 km af ströndum sem skiptast milli tveggja hafa; Mar Menor og Miðjarðarhafsins. Sérstök staðsetning bæjarins við ströndina og náttúrulegt umhverfi á svæðinu hafa ýtt undir vinsældir hans og aukið eftirspurn eftir húsnæði.
Auk fallegra stranda, hafnarinnar og góðu framboði þjónustu hefur San Pedro del Pinatar fram að færa einstaka náttúruperlu; þjóðgarðinn Las Salinas y Arenales de San Pedro del Pinatar en garðurinn er votlendi með fjölbreyttu fuglalífi og fallegri plöntuflóru. Bærinn San Pedro del Pinatar, auk sjálfs kjarna bæjarins, er byggður upp af öðrum litlum úthverfum eins og El Mojón, Las Salinas, Los Sáez og Lo Pagán. Hið síðasttalda, Lo Pagán, er hið mikilvægasta vegna mikillar þróunar hvað varðar ferðamennsku. Mikilvægasta ströndin í Lo Pagán er playa de La Puntica, en þar eru falleg lítil hús og spa svæði sem teygir sig út í hafið, auk góðs framboðs af dægradvöl.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum